03.07.2006 18:04:27 / lea_m

leamargret.bloggar.is

jæja ég ákvað að prufa nú þetta nýja, ef ég er ekki að fýla það þá skipti ég bara aftur í þessa! En já slóðin er semsagt :

www.leamargret.bloggar.is

endilega kíkið og kvittið ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.07.2006 19:28:08 / lea_m

myndir frá englandi og fleirra ;)

Æj mig langaði ekki að hafa eitthvað leiðinlegt, sorglegt og niðurdrepandi blogg þannig ég ákvað bara að gera nýtt ;)

En já ég er að setja inn myndir frá Englandi ! úúú! hehe nei eilla ekki þær eru ekkert voða skemmtilegar, mest allar svona : Mamma ,,Hey Lea farðu og stattu fyrir framan þetta hús/byggingu/runna" o.s.fr. og ég fer og stend alltaf eins hehe þannig það er ekki mjög mikil fjölbreytni í þessu, en það eru nú myndir af mömmu og meira að segja pabba líka inná milli! hehe! Og annað, þetta eru frekar súrar myndir af manni, það var svo heitt að maður var allur sveittur (er rosalega ósmekklegt að segja það?) og klístraður og var ekekrt að mála sig því það rann bara af! heh ;) og svo erég ekki frá því að ég hafi barasta fitnað líka! sé móta fyrir smá undirhöku :haha:

En annars er ég bara búin að fara að heimsækja ömmu á hverjum degi og hún er svo yndislega sæt og krúttleg! Hún er orðin svo gleymin og skilur ekkert af hverju allir eru að vesenast í kringum hana, hún rak bara tánna í borðið (en málið er að það er ekkert blóðflæði niður í tærnar og þess vegna er engin húð á litlu tánni :S) En já ég verð að segja ykkur pínu sögu af henni :

Sko málið er að tryggingarnar borguðu fyrir svona göngugrind og mamma fór með hana í gær til ömmu, fyrst var amma bara móðguð, ,,Hvað haldiði að ég þurfi svona, ég get alveg labbað" sagði hún og mamma setti bara göngugrindina til hliðar, en svo þegar hún var að fara þá sagði hún, ,,jæja mamma mín viltu ekki allavana koma og lýta á göngugrindina" og amma var alveg til í það sko og þegar hún sá hana þá var hún svo ánægð og sagði ,,þetta er alveg eins grind og hann í hófgerði ** á! Mig hefur alltaf langað í svona, þetta er það besta sem ég hef fengið í mörg ár" Búin að steingleyma að fyrir svona 20 min hafði hún bara verið móðguð yfir að fá einhverja göngugrind, pff! :haha: Og svo í dag var hún búin að fara með hana inní geymslu! Hún er alveg yndisleg!

En já ég ætla þá að klára að setja inn myndirnar! en þær verða komnar inn á næsta klukkutímanum! og já þær eru semsagt á www.picturetrail.com/leamargret_1 og eru í Englandi !

Kv. Lea :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 22:41:44 / lea_m

Life is a bitch!

Jæja ég vil byrja þetta blogg á því að taka það fram að ég og Skúli erum sko ekki hætt saman! hehe nokkrir búnir að spyrja mig að þessu!

En já eins og titillinn segir þá er lífið frekar ömurlegt núna, ekki nóg með allt vesenið sem er búið að vera heldur er amma með einhvern gúlp eða eikkað álíka svo ósæðin í vinstar fæti er stífluð og það er ekki hægt að gera aðgerð eins og er svo líklegast á hún bara nokkra mánuði eftir nema eitthvað mikið gerist :( og eins og það sé ekki nóg þá datt hálf afi og brotnaði og svo kom líka í ljós að hann er með krabbamein!! Kommon getur lífið versnað mikið meira!!! :^)

En að öðru ekki eins niðurdrepandi! ég kom heim frá london í gær, það var æði! Frábært veður og bara mjög gaman! Fór á söng/dansleik sem var geðveikur! Verslaði líka eitthvað! Samt ekkert mikið! En já svo ætti ég líka að vera komin með símann á morgun! Jei loksins! Og já ég keypti mér líka svona i-pod nano! 500 lög eru meira en nóg fyrir mig ;)

En já svo ætla ég bara að reina að koma heima sem fyrst! Allavega í heimsókn!

Kv. Lea


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 23:17:20 / lea_m

...

Jæja ég ætlaði bara aðeins að láta vita af mér, ég er í rvk núna og verð þar líklegast megnið af sumrinu, samt aldrei að vita nema ég ákveði að koma heim eitthvað fyrr! Kemur allt saman í ljós!

En já allavega þá er ég alveg þokkaleg, danmerkurferðinni var aflýst og þar af leiðandi hróaskeldu líka... því miður! en mamma og pabbi ætla að taka mig með sér til london á föstudaginn svo ég fæ þó eitthvað að fara út í sumar! Svo kemur skúli á morgun og ég er mjög spennt að hitta hann! þetta er búnir að vera erfiðir dagar og ömurlegt að hafa þurft að fara frá honum en það verður gott að geta knúsað hann aftur á morgun! :)

En jæja það var þá ekki meira, hlakka til að koma aftur á norðfjörð hvenær sem það verður! svo er aldrei að vita hvort ég haldi þessu bloggi gangandi!

Kv. Lea


» 14 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 12:21:38 / lea_m

FULLT af nýjum myndum ;)

Jæja gleraugun ennþá ófundin! HVERNIG GETUR ÞAÐ VERIÐ! það búa þúst hvað 1600 mans hérna og ég var ekki á svo mörgum stöðum á laugardaginn! :( ég sakna þeirra svo! í hvert skipti sem ég hreinsa grillið í sjoppunni þá á ég von á að fá svona móðu á þau en nei nei ég er nátla ekkert með gleraugun! En vitiði þá verða bara fundarlaun!!!

Hver sem fynnur gleraugun mín fær að sofa á milli hjá mér og skúla ;) hehe nei okei ég skal borga 2500 kr. er það ekki sanngjarnt??? En allavega þá eru þau svona nokkuð plain, innaná stendur eitthvað oliver eitthvað! En já bara ég mun elska þig og dá að eilífu ef þú finnur þau!

 En að öðru, ég fékk útborgað í fyrradag :D jei slatti af penge! ég þarf reindar að borga eróbikkið og svo nátla rope jogað en það er bara 15.000 kjell, ég á samt nóg eftir ;) og þótt ég sé að fara til Danmerkur eftir íha 23 daga :D þá ætla ég samt að fara núna á eftir niðrí system og sjá hvort ég finni mér ekki einhverja eina flík sem kostar ekkert alltof mikið! en síðan þá er það bara spara spara spara!

En jæja ég er þá farin að bjalla í Vilborgu Viltu & Lobbu Klobbu!

Vi ses! (er að æfa mig fyrir danmerku;) )

Kv. Lea

p.s. Enginn að koma í sjoppuna í kvöld að kaupa sjeik eða braðgarred! það er það leiðinlegasta í heimi!!)

p.s. 2 ! Jeebb þið lásuð rétt hérna fyrir ofan, alveg skrilljón nýjar myndir á www.picturetrail.com/leamargret_1 (eða okei ekki alveg skrilljón en full fullt ;) ) og já þær eru held ég í ball og fleirra! þetta er semsagt myndir frá partýinu hjá Lovísu! á ennþá eftir að bæta nokkrum við hehe ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 18:13:12 / lea_m

hædí hæ!

úff helgin var rosaleg, þá sértaklega laugardagurinn og við skulum ekkert fara frekar útí það hehe ;) en jább tók nokrar myndyr (eða meira einhverjir aðrir) og ég skelli þeim ásamt hinm sem ég á ennþá eftir að setja inn, fljótlega! ;) hehe

e nú fer sko að styttast í danmerku uss maður hvað ég er spent en samt smá stressuð, en jæja ég hef þetta þá ekki lengra að þess sinni! kveðja Lea ;)

p.s. Hefur einhver séð gleraugun mín??? er búin að týna þeim :S


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 14:12:56 / lea_m

óður til sumarsins! (SEM ER EKKI HÉR :@ )

Ó þú fagra sól, hví hefur þú yfirgefið mig, kom þú í faðm minn og ég min dá þig að eilífu....krapp!! alveg týpískt! ég var að vinna alla seinustu viku, morgunvaktir og það var glampandi sólskin og steikjandi hiti en nei nei ég var að vinna, og svo nátla þegar ég var búin var ég nátla ónýt í fótonum þannig ekki gat ég farið út að labba í góða veðrinu! Og núna er bara rigning og viðbjóður úti! pff ég verð þá bara inni og hlýja mér við tölvuna! :^)

En að öðru! ég er með eina góða pælingu ég er búin að spá doldið lengi í þessu! Sjáið til ég var að vinna í olís, svo fór ég að vinna í bakkabúð og núna aftur í olís og meður tekur eftir hinum og þessu við að afgreiða fólk, en já pæling mín er þessi.... Af hverju kaupir eilla bara fólk sem reykir diet coke???, eða líka hægt að orða það þannig að af hverju reykja eillla allir sem kaupa diet coke???? Þið hin sem vinnið í sjoppum og búðum hafðið ekki tekið eftir þessu???? allavega endilega kvittið ef þið hafið tekið eftir þessu eða vitið svarið!!

En hey ég gleymdi að segja ykkur frá því helvíti sem ég lenti í þegar ég flaug suður fyrir 2 vikum!! Sko málið var að ég keypti mér hamborga á flugvellinum á egs og hann var alveg frosinn, svo það þurfti að hita hann í örbylgjunni, en þegar ég fékk hann var hann enn frosinn í miðjunni svo aftur þurfti að hita hann, enn hann var ennþá frosinn svo í þriðja skiptið þurfti að hita hann! og vá hvað ég var orðin svöng!!! En jæja akkúrat þegar hamborgarinn var loksins orðinn tilbúinn þá var kallað útí vél!!!!!:^) jájá okei ég tók hann  bara og tissjú með en nei nei vélin var alveg troðin og ég lenti á svona gangasæti (semsagt ekki við gluggann) og feit manneskja við hliðiná mér þannig ég meikaði ekkert að borða fyrir framan alla, þannig ég þurfti að fljúga ALLA leið suður maginn á mér öskrandi af hungri og loksins þegar við lentum var hann orðinn harður... :cry:

En hey ég er farin í sturtu, eða að horfa á sjónvarpið eða gera bara eitthvað! plokka á mér fæturnar kanski bara! (úff hvað það er erfitt að vera í fríi :S 

Lea kveður!

ps ég er að fara í klippingu á föstudaginn! LOKSINS! (ekki búin að fara síðan fyrir þorrablótið útaf leikritinu!)


» 14 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 20:14:28 / lea_m

stutt kveðja frá reykjavík ;)

Jæja ég er stödd í rvk voða ljúft! alltaf svo gott að hitta fjölskylduna :D voða lítið búið að ske hjá mér! ég er búin að fara aðeins að versla, keypti mér skó og svona hmm  vveit ekki hvað það heitir! þið sem þekkið mig verðið bara að sjá það ;) hehe :P og svo ammælisgjöf handa skúl! ég ætlaði að fá mér aðra skó og buxur en ég er að spá að gefa skúla frekar stærri gjöf :haha: sko mamma borgar þess vegna kaupi ég ekki bæði! það væri to much! :P

Annars fór ég í bíó með rakel og Alla (nýja kærastanum sko) í bíó á miðvikudaginn, fórum á V for Vendetta! ágætis mynd! kom mér á óvart þar sem ég hafði alls engar væntingar til hennar :P svo í gær fór ég með Guðbjörgu (systur hans Skúla) á þarna myndina með Sara Jessica Parker og ofur sæta gaurnum ;) hehe hún var mjög fyndin!  við vorum samt vi ðað æla á þennann ofur bandaríska endi ;) hehe

En annars er ég farin að spjalla við ma&pa (ljúft að vera heima :haha:)

Lea mömmustelpa kveður! (og auðvitað pabba líka sko! hljómaði bara ansalega að segja Lea mömmuOGpabbastelpa kveður;)

p.s. Skúli ég sakna þín voða voða mikið!

p.s. 2 komnar myndir í www.picturetrail.com/leamargret_1  Þær eru í ýmislegt hehe mæli pottþétt með þeim :P

p.s.3 !!! Já og btw þá eru komnar ennþá fleirri myndir! en ég vil vara ykkur við því að áður en þið kíkið þá eru þetta BARA myndir af mér og rekl og þær eru ALLAR teknar í tölvunni ;) hehe en já www.picturetrail.com/leamargret_1 í "ég um mig frá mér til rakelar" hehe ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 14:28:07 / lea_m

Til hamingju með afmælið Skúli minn!!!

Já þetta blogg ælta ég að tileinka honum Skúla mínum því stóri strákurinn minn er jú 18 ára í dag! :D Húrra:!:

En að öðru ég og Svana gerðum frekar lélega tilraun í gær til að fara á bretti, en þegar v ið komum var mikill vindur og bara klaki í staðin fyrir snjó! svo í ótta við að snúa okkur á háls þá hættum við bara hehe :P við fórum bara uppað stökkinu og vorum að fylgjast með geðsjúklingunumn Hjálmari og Sigga Villa (sem btw var í gríslingsbúningnum sínum hehe) taka svona snúa sér í loftinu á stökkinu!!! :O

En svo komum við heim og þar sem ég á engann pening þá var ammælisgjöf mín til hans blaðra sem ég var búin að skreyta og jójó sem ég fékk gefið uppá skarði! hehe :S Hann fær bara betri þegar ég kem frá RVK! ;)

En jæja ég er farin að taka smá til í húsinu fyrir afmælið og svo að taka mig til! (ég er nebbla að fara að elda læri!!!!!! og það 2!!! oh ég er s vo dulleg ;P hehe)

Lea THE cheff kveður ;P


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 16:49:29 / lea_m

jei, bloggtime!

já þar sem ekkert NÁKVÆMLEGA EKKERT er að gerast hjá mér, fyrir utan það að vera endalaust blönk, með dúndrandi hausverk og blöðrubólgu (er þetta kanski eikkað persónulegt sem marr á ekki að auglýsa á netinu?? :P ) en já þá ákvað ég að setja inn svona duddurudu.... x lista! (sem ég btw stal af gunnu ;) )

(x) reykt sígarettu

( ) klesst bíl vinar/vinkonu

( ) stolið bíl (foreldranna)

(x) verið ástfangin/n

(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu

(x) verið rekin/n ( eða þúst látin fara því þau voru með of marga starfsmenn og ég var sú nýjasta! Týpískt ;) ;)

(x) lent í slagsmálum

(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum

( ) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki

( ) farið á blint stefnumót

(x) logið að vini/vinkonu

(x) skrópað í skólanum

( ) horft á einhvern deyja

(x) farið til Canada

( ) farið til Mexico

(x) ferðast í flugvél

(x) kveikt í þér viljandi (sokknum mínum, eða þúst bara svona eins og allir hafa gert ;) )

( ) borðað sushi

( ) farið á sjóskíði

(x) farið á skíði (næstum ég fór á bretti seinasta mánudag :haha: )

( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu

(x) farið á tónleika

(x) tekið verkjalyf

(X) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna

(x) legið á bakinu úti og horft á skýin (eðastjörnurnar reyndar)

(x) búið til snjóengil

(x) haldið kaffiboð

(?) flogið flugdreka (æj ég man ekki alveg, held það samt)

(x) byggt sandkastala

(x) hoppað í pollum

(x) farið í "tískuleik" (dress up)

(x) hoppað í laufblaðahrúgu

(x) rennt þér á sleða

(x) svindlað í leik

(x) verið einmana

(x) sofnað í vinnunni/skólanum

(x) notað falsað skilríki (fékk hjá stelpu til að komast inná ball)

(x) horft á sólarlagið

(x) fundið jarðskjálfta

(x) sofið undir berum himni (samt ekki heila nótt) 

(x) verið kitluð/kitlaður

(x) verið rænd/rændur

(x) verið misskilin/n

(x) klappað hreindýri/geit/kengúru

(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi (með öðrum já)

;) verið rekin/n eða vísað úr skóla

( ) lent í bílslysi

( ) verið með spangir/góm

(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni

(x)borðað líter af ís á einu kvöldi

(x) fengið deja vu

(x) dansað í tunglskininu

(x) fundist þú líta vel út

(x) verið vitni að glæp

( ) efast um að hjartað segði þér rétt til

( ) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)

(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni

(x) verið týnd/ur

(x) synt í sjónum

(x) fundist þú vera að deyja

(x) grátið þig í svefn

(x) farið í löggu og bófa leik

(x) litað nýlega með vaxlitum 

(x) sungið í karaókí

( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum

(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki

(x) hringt símahrekk

(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér (og heitt kakó líka! ÓJ!! )

(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni

(x) dansað í rigningunni

(x) skrifað bréf til jólasveinsins

(x) verið kysst/ur undir mistilteini

(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um

(x) blásið sápukúlur

( ) kveikt bál á ströndinni

(x) komið óboðin/n í partý

( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í

(x) farið á rúlluskauta/línuskauta

(x) hefur einhver óska þinna ræst

( ) farið í fallhlífastökk

(x) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig (jebb þegar ég var að flytja aftur til íslands frá kanada)

Jæja þá er þetta komið hehe ;) alltaf gaman að svona! en jæja ég ætla að fara að halda áfram að vera með hausverk og vorkenna mér af því að ég er ALEIN heima :( greyið greyið litla Lea :( ) Tek við samúðarkveðjum í síma 8469654!

Og já jakkinn er enn hjá mér! brúnn stelpu leðurjakki! nr mitt er fyrir ofan!

Lea kveður að sinni!

ps ég er líka alveg sátt ef ég fæ bara samúðarkomment! bæði henntar mér!


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 19:55:45 / lea_m

Lost and found! ;)

Týndi einhver leðurjakka á fáskrúðsfjarðarballinu??? ef svo er hafðu þá samband, meilið hjá mér er leamargret89@hotmail.com sendið mér bara meil, eða já addið mér bara! en þið verðið þá að lýsa honum ;)

En annars var þetta geðveikt kvöld sko! (föstudags sko) byrjum á frumsýningunni, hún gekk sko ágætlega! Var svo brjálaðslega stressuð en ég meina þetta var bara gaman! svo var ótrúlega gaman á balli með meisturunum í Out Loud! þeir klikka aldrei :D 

á laugardeginum fór ég í sund, fyrsta skiptið í örugglega ár :P það var æðislega! svo var ég svo brún :haha: hoho (allir svo hvítir í kringum mig) hehe nei nei! en já svo um kvöldið fór ég, skúli og hafþór til ingimars, þar fór ég á kostum í kapal og pinbal! hehe það var ágætt! svo færðum við okkur til Hemma, en ég náði fljótlega að draga skúla heim hehe :P

sunnudeginum var sýning nr 2 og hún var ótrúlega skemmtileg :haha: áhorfendurnir voru æðislegir, klöppuðu ótrúlega mikið og hlóu líka helling! svo var ég ekki nærri því jafn stressuð þótt ég ruglaðist nokkrum sinnum :P                

En að aðalmálinu :P í dag fór ég á snjóbretti :haha: ég var ekkert voða flink og doldið pirruð en þetta var samt gaman! ég meira að segja komst næstum því alla leið upp, en ég var bara orðin svo þreytt í höndinni að ég sleppti rétta áður en ég kom! en úff hvað ég er þreytt! svo bara halda áfram að fara og æfa sig :D

Lea brettagella kveður ;)

ps set inn myndir þegar netið hættir að vera tregt! (sko af leikurunum úr Cry Baby)


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 13:22:01 / lea_m

Frumsýning á morgun :O

Já úff pælið í því! generalprufan er í dag og svo bara frumsýning á morgun 8| úff! hvernig getur tíminn liðið svona hratt! mér finnst eina og að það var febrúar í gær! Ég er orðin svona pínu stressuð... það á örugglega eftir að aukast sam með deginum! hehe :P

Svo á morgun, beint eftir sýningu er klárlega málið að stökkva beint uppí rútu og skella sér á ball með meirurunum í Out Loud! Jebb ég held að það sé meira að segja bara ágætis stemming fyrir þessu balli (ekki að það komi neitt á óvart sko ;) )

En jæja ég er að spá í að fara að fá mér að borða! (allavega gera heiðarlega tilraun til  þess ;) )

Lea budda (sko góða stelpan úr Cry Baby) kveður!

ps það koma myndir frá generalprufunni, máski eikkað frá frumsýningunni og ballinu fljótlega, lýklegast eftir helgi ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 12:12:10 / lea_m

Fiskurinn Baldur... eða var það krúttípútt???

Já titillinn hér á ofan á sér langa skýringu... eða nei reyndar ekkert svo langa, mig dreymdi hann!!

     Já Það var sko þannig að ég og Skúli ætluðum að fara að fá okkur bíltúr og við spurðum Ingu og Bald (sem voru sko fiskar) hvort þau vildu ekki koma með, Inga vildi bara vera eftir en hann Baldur ákvað að slá til. Við ókum af stað og var voða gaman þar til ég tók eftir að greyið Baldur (sem alltíeinu hén Krúttípútt) var farinn að verða frekar þurr:S ég fór í panik því Baldur/Krúttípútt mátti auðvitað ekkert deyja svo ég sagði Skúla (sem þó var aukaleikari í þessum draum mínum, fiskurinn var aðal:P) að bruna í næstu ísbúð:!: og varð íscafé fyrir valinu! Ég þaut með hann inn og skellti honum í skál með vatni í en skálin var of lítil!! þá fann ég stærra ílát og setti hann þar og viti menn, við hliðiná var fiskamatur 8| Hversu heppin getur ein manneskja verið ha!! En já allir voru að dást að honum Baldri/Krúttípútt mínum en nei nei hringir ekki þá ljóta vekjaraklukkan og vekur mig upp af þessum góða draum!! :(

En nú veit ég þó að mig langar í fisk :haha:

En hey frumsýning eftir næstum bara viku!! Sjæks 8| en já ég er farin að borða og svo horfa á nágranna!

Lea fiskavinur kveður! 8)

ps Ég vil fá kvitt!!!!


» 15 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 18:40:51 / lea_m

(8) sha boom sha boom (8)

Jæja nú er allavana  eikkað að frétta, ég er búin að ákveða að skipta yfir á hárgreiðslubraut! jebb skrifaði undir áðan! Ég var bara komin með svo mikinn skóla leiða og ég held að þetta sé bara mjörg skemmtilegt :P

En tja já ég held að það sé ekkert meira, ég held samt að stelpur-partý sé málið á laugardaginn! skúli að fara á/í eikkað reisugil með nestak og ég al-alein :cry:

En hey var ég búin að segja að ég er í söngleiknum?? allavana þá er ég það! ég þarf meira að segja að synga... :S úff samt verð með bjarneyu og evu þannig það ætti ekkert að heyrast of mikið í mér ;) En jæja ég er farin á dansæfingu ;)

oh jú svo er ég að fara í afródans á þarna sprota dögunum :haha: íha ;)

 

Lea kveður ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 15:32:54 / lea_m

Nýjar myndin!!!

hurru já minnst að frétta, helgin var fín, hörkustuð! nenni eilla ekki að blogga, er að fara í nátt og skapið verður alltaf doldið þungt við það!

en já myndir eru komnar frá þessari helgi, helginni þar á undann og þar á undann ;)

http://myndir.ekkert.is/leamargret

Kv. Lea


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5